Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 4. nóvember 2026
Þessi stefna lýsir því hvaða persónuupplýsingum Lyfting ehf. safnar í gegnum vefsíðuna lyfting.is, í hvaða tilgangi og hvernig þær eru meðhöndlaðar. Við förum að lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR).
Ábyrgðaraðili
Lyfting ehf. er ábyrgðaraðili þeirra upplýsinga sem þú sendir okkur í gegnum vefsíðuna.
- Nafn: Lyfting ehf.
- Kennitala: 621025-0820
- Netfang: lyfting@lyfting.is
- Sími: +354 781 0911
Hvaða upplýsingum er safnað
Ef þú sendir okkur fyrirspurn í gegnum formið á vefsíðunni vinnum við með eftirfarandi upplýsingar sem þú gefur upp:
- nafn,
- netfang,
- símanúmer (valfrjálst),
- tegund þjónustu sem þú óskar eftir, og
- textann sem þú skrifar um verkefnið.
Við söfnum ekki öðrum upplýsingum um þig í gegnum formið. Ef þú hringir í okkur eða sendir tölvupóst vinnum við með þær upplýsingar sem þú gefur í því samtali eða bréfi.
Í hvaða tilgangi og á hvaða grundvelli
Við notum upplýsingarnar til að svara fyrirspurn þinni, gera tilboð og eiga samskipti við þig um verkefnið. Vinnslan byggir á því að hún er nauðsynleg til að bregðast við beiðni þinni áður en samningur er gerður, og á lögmætum hagsmunum okkar af því að geta svarað fyrirspurnum og sinnt viðskiptum.
Við notum upplýsingarnar ekki í markaðssetningu og seljum þær ekki.
Hverjir fá upplýsingarnar
Til að vefsíðan virki notum við þjónustuaðila sem geta komist í snertingu við upplýsingar um þig:
- FormSubmit (formsubmit.co) tekur við efni formsins og áframsendir það í tölvupóst til okkar.
- Google hýsir tölvupóstinn okkar, þar sem fyrirspurnin berst, og afhendir letur vefsíðunnar (Google Fonts). Þegar letrið er sótt getur IP-tala þín borist til Google.
- Netlify hýsir vefsíðuna og heldur eðlilegar aðgangsskrár (t.d. IP-tölu og tíma heimsóknar) til að reka og tryggja öryggi þjónustunnar.
Þessir aðilar vinna upplýsingarnar fyrir okkar hönd eða veita tæknilega þjónustu. Hluti vinnslunnar getur farið fram utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þá er stuðst við viðeigandi verndarráðstafanir, svo sem staðlaða samningsskilmála Evrópusambandsins.
Vefkökur
Vefsíðan notar ekki vefkökur til rakningar eða auglýsinga og við notum ekki greiningartól á borð við Google Analytics.
Hversu lengi við geymum upplýsingarnar
Við geymum upplýsingarnar ekki lengur en þörf er á til að sinna fyrirspurninni og samskiptum í kjölfar hennar, nema lög krefjist lengri geymslutíma, til dæmis vegna bókhalds.
Réttur þinn
Þú átt rétt á því að:
- fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar við vinnum um þig og fá afrit af þeim,
- fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- fá upplýsingar um þig eytt, að uppfylltum skilyrðum laga,
- óska eftir takmörkun á vinnslu eða andmæla henni, og
- fá upplýsingar sem þú hefur látið okkur í té afhentar á tölvutæku formi.
Til að nýta réttindi þín skaltu senda okkur tölvupóst á lyfting@lyfting.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is, ef þú telur að vinnsla okkar brjóti í bága við lög.
Breytingar á stefnunni
Við getum uppfært þessa stefnu ef vinnslan breytist. Nýjasta útgáfan er alltaf birt á þessari síðu, ásamt dagsetningu síðustu uppfærslu.